Meðferð persónuupplýsinga og öryggisstefna
Meðferð persónuupplýsinga
Persónugreinanlegar upplýsingar
Áhættulausnir ehf. hlíta lögum númer 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Áhættulausnir ehf. leggja metnað í trúnað við viðskiptavini sína. Gögn sem innihalda persónuupplýsingar eru ekki látin þriðja aðila í té nema liggi fyrir skýrt umboð frá þeim sem persónuupplýsingar varða, þriðji aðili hafi heimild sem byggir á ákvæðum laga eða að fengnum dómsúrskurði.
Reglur Áhættulausna um tölvupóst frá félaginu
Upplýsingar sem koma fram í tölvupósti, sendum frá netföngum Áhættulausna ehf. eru trúnaðarupplýsingar og kunna að falla undir ákvæði um þagnarskyldu. Þessar upplýsingar eru eingöngu ætlaðar skráðum viðtakendum. Öllum öðrum er óheimill aðgangur að upplýsingum þeim sem koma fram í tölvupósti frá Áhættulausnum ehf. Ef þú ert ekki sá sem tölvupósturinn er ætlaður, er þér bent á að þér er óheimilt að upplýsa um tölvupóstinn, afrita hann eða dreifa honum og þér er einnig óheimilt að framkvæma, eða láta vera að framkvæma, einhverjar aðgerðir á grundvelli hans, en þessi háttsemi getur verið refsiverð að lögum.
Disclaimer
Information in email from Áhættulausnir is confidential and may be legally privileged. It is intended solely for the addressee. Access to email from Áhættulausnir by anyone else is unauthorized. If you are not the intended recipient, any disclosure, copying, distribution or any action taken or omitted to be taken in reliance on it, is prohibited and may be unlawful.
Öryggisstefna
Það er ásetningur Áhættulausna ehf. að upplýsingar fyrirtækisins og viðskiptamanna þess séu varðar og öryggi þeirra tryggt á viðeigandi hátt í samræmi við verðmæti þeirra og þá áhættu sem til staðar er hverju sinni. Til að standa við þennan ásetning mun verða séð til þess að veitt verði nægilegum fjármunum og mannafla til verksins.
Öryggi felst í:
– Leynd Upplýsingar aðeins aðgengilegar þeim sem hafa aðgangsheimild.
– Réttleika Gæði upplýsinga tryggð – rétt gögn á hverjum tíma.
– Tiltækileika Aðgangur tryggður þegar þörf er á.
Öryggisstefnan stuðlar að vernd gegn óleyfilegum aðgangi, yfirfærslu, breytingum, skemmdum (viljandi eða óviljandi) og stuldi á upplýsingum og búnaði.
Öryggisstefnan er gerð með það í huga að uppfylla kröfur sem fram koma í leiðbeinandi tilmælum Fjármálaeftirlitsins nr. 1/2019, um rekstur upplýsingakerfa eftirlitsskyldra aðila, lög nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og lögum nr. 90/2018, um meðferð persónuupplýsinga og persónuvernd, ásamt öðrum lögum sem ná yfir starfsemi fyrirtækisins.
Til þess að uppfylla lög og reglugerðir hafa Áhættulausnir ehf. sett markmið og öryggiskröfur til reksturs upplýsingakerfa sinna í samræmi við umfang og áhættu. Þessi markmið og öryggiskröfur eiga við hvort sem rekstri upplýsingakerfa Áhættulausna ehf. er útvistað eða ekki.
Umfang
Öryggisstefnan nær yfir alla starfsemi og starfstöðvar Áhættulausna.
Ábyrgð
Ábyrgð á framkvæmd öryggisstefnu liggur hjá framkvæmdastjóra. Allir starfsmenn eru ábyrgir fyrir því að hlíta öryggisstefnunni.
Tilkynningar
Öllum starfsmönnum er skylt að tilkynna öryggisatvik sem þeir kunna að verða áskynja um.
Öryggisbrot
Áhersla er lögð á að fylgja settum öryggisstöðlum og vinnureglum. Starfsmönnum og þjónustuaðilum er skylt að fylgja öryggisstefnunni, leiðbeiningum um öryggi svo og öllum tilgreindum ráðstöfunum fyrirtækisins. Brjóti þeir vísvitandi gegn þessum reglum mun verða beitt agaviðurlögum og eftir því sem við á ákvæðum laga. Áhættulausnir ehf. áskilja sér rétt til að leita réttar síns fyrir dómstólum eftir því sem við á.
Dreifing, endurskoðun og útgáfa öryggisstefnu
Öryggisstefnan endurskoðast árlega og er aðgengileg fyrir alla starfsmenn og samstarfsaðila eftir því sem við á.
Meðferð kvartana
Meðferð kvartana og réttarúrræði viðskiptavina
Áhættulausnir reyna ávallt að hafa það að leiðarljósi að starfsemin sé í samræmi við eðlilega og
heilbrigða viðskiptahætti. Stór hluti þessa er að bregðast fljótt og vel við ábendingum og kvörtunum, sem kunna að berast frá okkar viðskiptavinum.
Áhættulausnir hafa sett sér reglur um meðferð kvartana, en tilgangur þeirra er að tryggja að ferli við úrvinnslu kvartana viðskiptavina Áhættulausna sé sanngjarnt, gagnsætt og að úrvinnslu- og svartími mála sé eins skammur og kostur er. Þá er tilgangur reglnanna einnig að koma í veg fyrir að mistök starfsmanna fyrirtækisins eða brot á lögum og reglum endurtaki sig.
Hafi viðskiptavinur einhverjar ábendingar eða kvartanir vegna meintra mistaka Áhættulausna og/eða starfsmanna fyrirtækisins á framkvæmd laga eða reglna getur hann beint kvörtun til viðkomandi starfsmanns eða með rafrænum hætti til sveinn@alausnir.is .
Áhættulausnir halda skrá um kvartanir og meðhöndlun þeirra.
Réttarúrræði viðskiptavina
Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtækiEf viðskiptavinur er ósáttur við þau svör sem Áhættulausnir veita, getur hann beint kvörtun sinni til Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki, sem fjallar m.a. um ágreining viðskiptavina við fjármálafyrirtæki. Kvörtun til úrskurðarnefndarinnar skal afhent Fjármálaeftirlitinu skriflega á sérstöku eyðublaði sem má nálgast á skrifstofu eftirlitsins og heimasíðu þess.
Erindi skulu send til:
Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
Guðrúnartúni 1
105 Reykjavík
Sími: 520 3888
Tölvupóstur: urskfjarm@fme.is
Upplýsinga- og leiðbeiningaþjónusta Fjármálaeftirlitsins
Fjármálaeftirlitið leiðbeinir viðskiptavinum eftirlitsskyldra aðila. Í því felst að leitast er við að
leiðbeina aðilum um þau úrræði sem þeir hafa til að ná fram rétti sínum, m.a. hvaða aðilar fari með úrskurðarvald í þeirra málum og aðrar almennar leiðbeiningar.
Sjá nánar á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins.
Dómstólar
Aðilar geta leitað réttar síns fyrir almennum dómstólum hafi ágreiningsefnið ekki verið undanþegið lögsögu þeirra með lögum eða samningi.
Neytendastofa
Neytendastofa er ein þeirra eftirlitsstofnana sem hafa eftirlit með viðskiptalífinu og lögum frá
Alþingi, sem sett eru vegna öryggis og réttinda neytenda. Á heimasíðu Neytendastofu er m.a. unnt að nálgast upplýsingar um það í hvaða tilvikum og með hvaða hætti neytendur geta leitað til stofnunarinnar, telji þeir að réttur sé á þeim brotinn.
Hafa samband
Áhættulausnir ehf.
Suðurlandsbraut 4a, 4. hæð
P.O.Box 8135
128 Reykavík, Ísland
Kt. 650612-2130
+354 6181811