40 ára reynsla á vátryggingamarkaði
Áhættulausnir sérhæfa sig í ráðgjöf til fyrirtækja og stofnana á sviði vátrygginga og áhættugreiningar.
Við sjáum heildstætt um vátryggingamál þíns fyrirtækis.
Við leggjum áheyrslu á þjónustu við stærri fyrirtæki og búum yfir áratuga reynslu af þjónustu við fyrirtæki í alþjóðaviðskiptum.
Vátryggingaráðgjöf
Á vátryggingasviðinu felur ráðgjöf okkar m.a. í sér þarfagreiningu og mótun vátryggingarstefnu. Við sjáum jafnframt um samningagerð við núverandi vátryggjanda eða gerð útboðsgagna og útboðsstýringu allt eftir óskum viðskiptavina okkar. Í kjölfarið undirbúum við og komum á vátryggingasamningum og önnumst frágang og framkvæmd þeirra.
Við leggjum áherslu á gerð þjónustusamnings um viðskiptaumsjón, sem felur m.a. í sér samskipti við vátryggjanda, vöktun á vátryggingakjörum, umsjón, viðhald og framkvæmd vátryggingasamninga.
Áhættugreining
Á sviði áhættugreiningar leitum við leiða til að ná heildstætt utan um þær áhættur sem ógna því að viðskiptavinir okkar nái markmiðum sínum. Áhættugreining er m.a. grundvöllur ákvarðana í tengslum við áhættustýringu sem og vátryggingakaup.
“Við stuðlum að því að viðskiptavinir okkar nái markmiðum sínum.”
Fréttir
Ingimar Sigurðsson hefur störf hjá Áhættulausnum.
Ingimar er reyndur vátryggingamaður. Hann starfaði hjá Tryggingamiðstöðinni frá 1977 til 2007 lengst af sem deildarstjóri atvinnurekstrartrygginga og endurtrygginga. Frá 2007 til ársloka 2017 var Ingimar forstöðumaður endurtrygginga hjá VÍS.
Hafa samband
Áhættulausnir ehf.
Suðurlandsbraut 4a, 4. hæð
P.O.Box 8135
128 Reykavík, Ísland
Kt. 650612-2130
+354 6181811